laugardagur, febrúar 12, 2005

Það er komið nýtt blogg!!!

Bara að minna þá gleymnu á að það er komið ný bloggsíða: blog.central.is/nabblarnir

Ragnheiður

mánudagur, janúar 03, 2005

Hæ nabblarnir mínir :)

Gleðilegt ár. Nú er mín komin heim eftir dejlig jul i Danmark! Mín saknaði auðvita margs heima en það var bara svo gott að eyða jólunum með Casper. Fjölskyldu hans þótti svo fyndið að heyra okkur tvö tala íslensku og þau reyndu að geta inn í eyðurnar og útkoman var oft ansi skrautleg!
Það var svo auðvita mikið borðað á jólunum og ekki gleymdist snapsinn ;)
Mín prófaði svo að keyra í fyrsta sinn í Danaveldi og það þótti hin mesta skemmtiferð hjá familíunni hans Caspers. Ég var til dæmis að keyra á sveitavegi einn daginn þegar bróðir Caspers segir: hóhó Lísa hér má bara keyra á 50 þegar mín var á 85.....tralalala.
Við fórum svo í keilu eitt kvöldið ásamt afa Caspers sem er 81 árs og hann vann, fékk 103 stig!!!
Pabbi hans Caspers varð fimmtugur þann 21. des. og var voða flott veisla þann daginn, sem sagt það var alveg nóg að gera hjá okkur.

En jæja nabblar, hvernig líst ykkur á að hittast næstu helgi og borða saman?? Hvenær: 7. janúar kl. 20! Hvar: Espigerði 4

Kær kveðja, Lísa M.

föstudagur, október 29, 2004

hitt og thetta

hae stelpur, langt sidan eg hef latid heyra i mjer... jamm thetta er sko langfarinn Thoreyjus Mjallhvitus stodd i utlondunum. i fyrsta lagi vil eg opinberlega bjoda litla krilid hennar gunnhildar velkomid i heiminn. hlakka gedveikt til ad heilsa upp a krissa.. Krissi Snaer, got a ring to it, don't u think?

minar frjettir eru thaer ad eg er trulofud vilhjalmi prinsi. vid giftumst i juni a naesta ari og ykkur er ollum bodid i kokubod til tengdarommu minnar hennar elisabetar..

nei djok, frjettirnar eru ekki kannski svona rosa spennandi. en mjer finnst thaer rosa skemmtilegar, eg er nefnilega ad koma heim um jolin. hef ekki komid i 3 ar, ot thad er sko svoldi of langt sidan... eg kem semsagt 21sta (eda var thad 22..hmm man ekki alveg) og fer 2 jan.

o ja, ef thid viljid kikja a nyju updeitudu heimasiduna mina, kikidi tha a www.mjallhvit.tk

svo er eg enntha ad paela i hvad eg aetla ad gera a naesta ari... a eg ad koma heim? eda fara einhvert annad?london, paris, peking... thad er heill heimur tharna uti. endilega latid mig vita hvad ykkur finnst, enda nenni eg engann veginn ad akveda thetta alveg sjalf. eg gefst uppa ad vera sjalfstaed ung kona og vil bara lata akveda hluti fyrir mig. thegar eg kem heim vil eg ad allir bjodi mer i mat alla veganna tvisvar i viku og kaupi handa mer graena kortid og svo framvegis.

skemmtidi ykkur vel i kokubodinu hennar gunnsu og hugsidi til min thegar thid trodid i ykkur hjonabandsaelu. no pun intended.

jaeja ef eg skrifa ekki fyrr! tha segi eg bara bless i bili og sjaumst sko helviti fljott!

miðvikudagur, október 27, 2004

Nýir tímar???

Hæ pæs! Ég tók mér það bessaleyfi að útbúa nýja nabblabloggssíðu!!! Kíkið á þetta og segið mér hvað ykkur finnst!!! Smella hér.

Ragnheiður

Nabblablogg!

Nabblablogg!
Sælar stúlkur,
þá er ég loksins orðin nettengd og get skoðað allar hamingjuóskirnar sem við erum búin að fá. Takk kærlega fyrir. :)
Eins og þið flestar vitið þá erum við búin að skíra litla nabblann okkar, hann heitir Kristófer Snær. Nafnið Kristófer kemur úr símaskránni og Snær er hugmynd sem mamma nr.2 gaf okkur þ.e. Siffý pæja, takk fyrir það :)
Eins og þið allar vitið þá á ég afmæli eftir viku og langar að bjóða ykkur öllum í smá kvöldkaffi til að hrista upp í eggjastokkunum í ykkur, he he ;) Auk þess er tími til kominn að við nabblarnir hittumst áður en vetrarösin byrjar þ.e. próf og jól!!!!
Sem sagt miðvikudagskvöldið 3 nóvember um kl.8 eða 20:00 að Kristnibraut 1 í grafarholti, makar/kærastar/unnustar/"góðir vinir" eru velkomnir með. Ágætt væri að vita hverjir myndu koma svo ég og Kristófer fingralangi vitum hversu mikið við eigum að baka.... Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll eftir viku.

Með góðri kveðju,
Gunnhildur mömmu-nabbli
s.517-8586, gsm. 895-8486

mánudagur, október 18, 2004

10 nabblinn :)

Nú erum við orðnir 10 nabblar :) Innilega til hamingju með litla prinsinn Gunnhildur og Doddi!! Kær kveðja Lísa M. og Casper.


laugardagur, október 16, 2004

VELKOMINN MINI-RISI ÞORGEIRSSON :D

Ég tek mér hér með það bessaleyfi, þar sem ég veit að Gunný er ábyggilega orðin mjög upptekin móðir, og blogga um að hann litli Mina Risa Þorgeirsson sem er kominn í heiminn ;) Drengurinn ákvað loksins að láta mömmu finna fyrir því aðfaranótt fimmtudags og kom svo í heiminn um tveimur tímum fyrir miðnætti þann 14. október! Hann er sem sagt með nettan nabbla tendens í sér og vill láta hafa svolítið fyrir sér en móðir hans hvu hafa fyrirgefið honum það um leið og hún leit hann augum enda prýðishnokki og með eindæmum prúður ;) Stóri var 53cm og næstum 14 merkur og er því langt og vöðvamikið sjarmatröll. Heyrst hefur að í dagsbirtu sjáist glitta í rauða lokka og hefur drengurinn erft það besta frá hvoru foreldri, nef móður sinnar og augun hans pabba... en hvaðan hann hefur hið ljúfa skap og einstaklega hrífandi svipbrigði veit þó enginn... ;) Segi ég bara að lokum innilega til hamingju með litla krútt Gunnhildur mín og veldu nú gott nafn á stráksa... til dæmis Margrétus Lárus :D

laugardagur, október 02, 2004

STUÐ PARTÝ næstu helgi ;)

Loksins loksins kem ég mér í að blogga smá... það er bara búið að vera svo brjálað að gera hérna í Danaveldi að ég hef ekki náð að gefa mér tíma til að blogga í langan tíma! Reyndar ekki svo brjálað í skólanum heldur í félagslífinu og gestagangi!!

Já ég er sko orðinn opinber djammari... himmmm eftir að hafa nánast ekki setið kyrr í allt sumar þá hefur hún Margrét Lára ekkert róast síðan hún hélt út aftur í skólann sinn ;) Hverja einustu helgi hefur eitthvað skemmtilegt verið í gangi og hef ég meira að segja afrekað að halda tvo vel heppnuð partý, smá upphitun fyrir afmælispartýið mitt næstu helgi sem btw ykkur og kærustum er auðvitað boðið í :D Í september var svo gott veður að ég gat haldið grillpartý þar sem fólk sat bara úti til að verða tólf í góðum hita... reyndar endaði ein uppi á spítala eftir að óboðnir gestir höfðu leikið hana grátt... já hún varð svo illa fyrir barðinu á flugunum, sem héltu veislu á okkar kostnað, að hún var lögð inn á OUH eða Odense Universitet Hospital, skólasjúkrahúsið okkar! Helgina eftir mætti þessi sama stelpa þó galvösk í stelpupartý hjá mér. Svo skemmtilega vildi til að það var innflutningspartý á kolleginu á sama tíma þannig að við flökkuðum á milli hæða til að heilsa upp á fólkið þar. Síðan hefur maður verið duglegur að kíkja á kaffihús, í farandstívólí, útitónleika, Legoland, bíó, út að borða, til Kaupmannahafnar, í partý til Sifjar og á hestbak á Fróni... og einnig dugleg að líta svona örlítið í skólabækurnar til að friða samviskuna.

Í gær var svo árshátíð, svaka stuð nema hvað að það er hálfhallærislegt að vera einn af 12þúsund manns sem gengur um í sínu besta taui um hina kílómetra löngu ganga skólans. Árgangurinn minn fór saman út að borða á rosalega góðan stað, klikkuðum ekki á sama hlutnum og þegar maður var á fyrsta ári og borða uppi í skóla! Systir og fjölskylda kom í heimsókn í síðustu viku þar sem elsta dóttir hennar getur ekki mætt í skólann... fórnalamb kennaraverkfallsins... Það var alveg rosalega gaman að hafa þau, nema hvað hann Magnús litli vildi oftast bara fara heim til sín að sofa á kvöldin!! Hann er nú bara 3 ára og ekkert gaman að þurfa að sofa annars staðar en í sínu rúmi og pissa í eitthvað klósett í flugvél og í lestum... var sko ekki alveg til í það! Síðan komu systir hennar Siggu Maju og mamma í heimsókn til okkar Siggu... já ég er búin að hafa ólöglegan sambýling hjá mér síðan ég kom út... voðalega þægilegt. Oft þegar ég kem heim úr skólanum er Sigga búin að vaska upp, skella í þvottavél og búa um rúmið ef ég hef ekki nennt því um morguninn. Síðan er hún tilbúin með heitan mat þegar ég kem heim úr leikfimi :D Hún er sem sagt í Lýðháskóla hérna rétt hjá og kemur til mín að gista... já nema núna um helgina þar sem hún er í Köben með systur sinni og mömmu... :( Þess vegna hef ég nú náð að lokka til mín nokkrar vinkonur mínar hérna úti, sem ekki teljast nabblar, í súkkulaðiköku og ís í aften. Þið eruð auðvitað hjartanlega velkomnar en kannski viljið þið bara bíða með að hitta mig þar til næsta laugardag þegar ég held upp á afmælið mitt heima á Íslandinu góða. Þema partýsins verður STUÐ og það byrjar klukkan átta. Ég ætla að bjóða upp á velkomst drik og smá mat en þetta verður samt ekki alveg matarboð þó svo að án efa að maður geti borðað sig nokkuð saddan á því sem ég bíð upp á ;) Það er þó víst að ef þið viljið drekka ykkur fullar þá nægir ekki þessi velkomst drykkur- ef ég þekki ykkur rétt- svo mætið með eitthvað fljótandi og svalandi! Endilega látið mig vita ef þið ætlið að skrópa eins og hún Sif "Spánar"nabbli annars geri ég bara ráð fyrir að þið mætið... þið megið samt alveg tilkynna komu ykkar og þar með byggja upp ennþá meiri STUÐstemmningu ;)

C u, Margrét Lára

mánudagur, september 27, 2004

Glókollur Óskarsson

Hæ og takk fyrir síðast. Ég skemmti mér mjög vel þótt ég hafi ekki stoppað lengi. Það er líka orðið rosalega fínt heima hjá Möggu og Heiðari.
Setti svo inn link fyrir þá sem vilja skoða heimasíðuna hans Glókolls Óskarssonar sem fæddist 16. ágúst. Smellið á fyrirsögnina til að opna síðuna.
Kveðja,
Ragnheiður

mánudagur, september 20, 2004

Takk fyrir síðast stúlkur!! ég skemmti mér mjög vel á laugardaginn og þakka kærlega fyrir mig Sif! :) Það var ekki eins gaman þegar við Heiðar stóðum hér fyrir utan húsið og föttuðum að hvorugt okkar var með lykla.....en það er önnur saga. Hin sagan er sú að: ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ PARTÝI HJÁ OKKUR! eins og ég auglýsti örugglega fyrir alþjóð hjá sif... :/ En allavega, þá erum við Heiðar nýýýflutt auk þess sem það vill svo skemmtilega til að ég á afmæli á sunnudaginn og ætla því að bjóða fólki að verða drukkið heima hjá mér, tja eða edrú (en rabó er sú eina með það leyfi...og Gunnhildur líka nottla) Humm, þarna er næstum komin kjaftasaga um ragnheiði ;)
Munið bara: Álfaskeið 92-Laugardagur um 20leytið-Gott skap-Áfengi-Makar. Hvernig hljómar það?

Þið megið endilega láta mig vita hvort þið komist eða ekki, svona svo ég viti hvort ég þurfi að stækka íbúðina mína mikið... ;) en annars vonast ég til að sjá alla nabblana mína!

tjútúls..Maggan

fimmtudagur, september 16, 2004

Nabblablogg!

Nabblablogg!


Halló halló!!!
Minns ætlar barasta að segja ykkur frá partýinu mínu hérna....það verður partý í Steinagerði 12 núna á laugardaginn (18.sept 2004). Ég ætla allavega á Papa ballið á Nasa í framhaldi af partýinu....það er frítt inn fyrir fyrstu 200 sem mæta á milli 23 og 24 og svo kostar 1500kr inn eftir það! Ætli það sé ekki æskilegt að fólk mæti barasta uppúr átta til mín svo það sé hægt að fara snemma í bæinn!!! Svo vil ég endilega að þið takið kallana ykkar með (þar sem það á við) :-) En jæja, þetta er orðið glimrandi gott hjá mér! Ég vonast bara til að sjá ykkur sem flest í partý gír á laugardaginn!!! Kiss kiss þangað til :-)


Siffý pæja!!!

Nabblablogg!: sorry sorry

miðvikudagur, september 15, 2004

sorry sorry

bloggið er í klessu, en það verður breyting til batnaðar...vona ég!! það kemur á næstu dögum, lofa að gera þetta voða fallegt!
búin að sitja of lengi yfir þessu í einni lotu þannig að ég reyni aftur seinna .
tjútúls....maggan

þriðjudagur, september 14, 2004

hellú görlsís. Það gerist aldrei neitt í þessum bloggmálum. Það er svona þegar allir eru svona bissí í skólum og annað. Sem minnir mig á það að óska Rabó til hamingju með nýju skólagönguna! Velkomin í heim okkar! :) Annars er minn skóli rétt að skríða af stað eftir vel heppnaða Laugarvatnsferð um síðustu helgi. Það var mjög næs að bjóða nýnemana velkomna með fylleríi upp í sveit. Skemmtileg hefð ;) Svo er ég bara síteiknandi og leirmótandi nær alla daga og skemmti mér konunglega! víííí
Pæling að fara að sofa núna, klukkan orðin allt of margt fyrir svona skólastúlku. Veriði nú duglegar að skrifa stúlkur! Alltaf gaman að lesa eitthvað frá ykkur!
Bið að heilsa ykkur í bilinu...Maggan


föstudagur, september 03, 2004

Sælar stúlkur

Ísferðir geta verið skondnar!!! Við Sif fórum í bíltúr og fengum okkur ís um daginn. Við stoppuðum í bónusvideó og pældum mikið í hvernig ís við ætluðum að fá okkur. Að lokum var röðin komin að okkur Sif talaði við afgreiðslumanninn sem reyndist vera þokkalega sætur stráklingur :) Hún bað um lítinn ís í brauði með dýfu og rís, orðið ís fékk stráklinginn bara til að vera stressaðann og ég held að hún hafi fengið aðeins stærri ís en lítill- en það er bara betra. Honum tókst ágætlega að setja ísinn í brauðformið held ég og setja á dýfuna var tja.... það allavegna kom dýfa á ísinn. Svo setti hann rísinn dálítið klaufalega á, en eftir að Sif sagði honum hversu flott þetta væri hjá honum brosti hann og var feginn að ísinn var tilbúinn. Svo tautaði hann "Ég veit ekkert hvað þetta kostar" og lét Sif aðeins greiða fyrir venjulegan lítinn ís í brauði án allra fylgihluta.
Strákurinn gekk ánægður að næsta viðskiptavini og var feginn að þessu væri nú lokið, þangað til að Sif kallaði í hann og spurði hvort að vinkona hennar fengi ekki ís líka.
Ææææ.... skein úr andliti hans - einn annar ís!!! Þá bað ég um sheik, lítinn með jarðaberjabragði. Fyrst fann hann ekki efri partinn til að gera lítinn sheik og spurði hvort hann mætti nota millistærðar glas en hann myndi ekki fylla það alveg, "Ekkert mál" svaraði ég. Stráklingurinn byrjaði feginn að setja ísinn í glasið og svo kom næsta spurning "Hvað viltu mikið bragðefni ?" "Tjaaa... bara svona milli" svaraði ég. Hann skellti smá bragðefni í og byrjaði að hræra sheikinn í vélinni. Þegar hann var búinn að því var dálítið skrítinn svipur á honum, svo fattaði hann alveg sjálfur hvað vantaði: MJÓLK!!! Hann setti slatta og hrærði betur. Æ æ æ .... "Heyrðu, sheikinn er soldið þunnur, má ég setja smá meiri ís út í", ég svaraði játandi og spurði hvort hann vildi þá ekki bæta smá meira bragðefni við. Jú hann gerði það, bætti ís og bragðefni út í og hrærði á ný. Þá taldi hann sheikinn vera soldið þykkann, setti lokið á og rör og bað mig um að sjúga og segja sér hvort þetta væri allt í lagi, sem og ég gerði. Ég sagði að þetta væri í fínasta lagi, þar sem að ísinn mun bráðna. Á meðan stráklingurinn var að gera sheikinn bað annar viðskiptavinur um bragðaref og rosalega var hann feginn að hann þyrfti ekki að gera svoleiðis. Ég greiddi ísinn minn og við Sif gengum brosandi út úr bónusvideó og vorum sammála um að þetta hefði verið skemmtilegasta ísferð sem við höfðum farið í, hingað til.

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

betra er seint en aldrei, til hamingju með afmælið elsku Þórey okkar, vonandi hefurðu átt góðan afmælisdag. Hér færðu síðbúinn afmælissöng,

húnáafmæliídag
húnáafmæliídag
húnáafmælihúnÞórey
húnáafmæliídag

kossar og knús
Lísa, Casper, Margrét Lára og Hrönnzl

sunnudagur, ágúst 22, 2004

Hallo skvisur!
Eg er herna a internetkaffi rett hja strondinni med bjor i annarri og musina i hinni. Akvad ad kasta sma kvedju a ykkur. Vona ad tid hafid skemmt ykkur vel a menningarnott ... veit ad Hronn og Margret Lara gerdu tad ad minnsta kosti. Svo segi eg bara aftur til hamingju med afmaelid Hronn!
Kvedja ur solinni,
Ragnheidur bruna og Andri bleiki ;)

föstudagur, ágúst 20, 2004

Hæhó, hvað segið þið nú gott? Enn saddar eftir grillveisluna... ;) Var rétt að velta fyrir mér hvort það er eitthver stemmning fyrir að hittast annað kvöld... kannski bara hitta hvora aðra niðri í bæ eða eitthvað... Rabó náttúrulega farin í sólina og Þórey farin aftur til UK en nú er Hrönnsla með múrskeiðina að koma í bæinn í dag ;)

Svo ætla ég að biðja ykkur að taka frá 9. október, vera svolítið danskar í ykkur og skrifa í litlu skipulagsbókina eða bara þylja það aftur og aftur yfir svo það festist í minnið að ég ætla að halda upp á afmælið mitt laugardaginn 9. október hérna heima á Íslandi! Blogga aftur um afmælisteitið þegar nær dregur en ég vona að við náum nú að hittast aftur bráðlega ;)

Kveðja, M.LÁRA

mánudagur, ágúst 16, 2004


Hæ hæ skvísur. Ég ákvað að skella þessari mynd hérna inn þrátt fyrir að fókusinn sé gjörsamlega útúr kú á henni og varla hægt að þekkja okkur í sundur á henni. En þetta er samt afar merkileg mynd fyrir þær sakir að við erum ALLAR á henni sem ég held að hafi ekki gerst í langan tíma.
Bið annars að heilsa ykkur, Ragnheiður ;)

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

aaaaaahhhhhhhhhh hvað ég elska sólina! Vildi bara deila því með ykkur hvað það er yndislega gott veður úti og yndislegt að vera í útivinnu (það er ekki oft sem maður er ánægður með það á íslandinu...) sól sól skín á miiiiiiiiig ;)

hafið það gott í dag elskurnar mínar!
Magga frekna

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Halló nabblar...

... ég fékk óvænta heimsókn í gær frá Margréti Láru og Þóreyju. Komu þær með skemmtilega uppástungu um að hittast annað kvöld (11.08.2004) og grilla saman. Hver komi með sitt eigið og við Doddi útvegum grillið ;) Gaman væri að hittast í góða veðrinu og kveðja hana Þóreyju okkar áður en hún stríkur aftur til Bretalands í veggfóður og teppi.

Annars er hugmynd að koma bara eftir vinnu eða um klukkan 19:00 heim til okkar Dodda, að Kristnibraut 1, og skella á grillið! Hvernig er líst ykkur á? Látið mig endilega vita... er komin með HEIMASÍMA :) :)
Síminn minn er 517-8586 :) og gsm 895-8486. Hlakka til að heyra í ykkur og sjá.

kveðja Gunnsý

mánudagur, ágúst 09, 2004

Heidó gellurs. Það er búið að vera frekar dauft yfir síðunni síðustu vikur og ákvað ég að reyna að láta ljós mitt skína með von um einhver viðbrögð. Ég vildi líka lýsa yfir ánægju minni með að vera í útivinnu þar sem veðrið mun leika við alla mína fingur í þessari viku (vonandi). Annars var ég að stinga nefi mínu saman við nef nöfnu minnar Láru í morgun í sambandi við Menningarnótt sem er víst á næsta lei(y)ti. Er einhver með eitthvað planað? Veit að gummi og sandra eru að fara í brúðkaup...nei, ekki sitt eigið.....eða hvað?? hmmm ;) Kannski ef fólk er á lausu og með nenning þá væri kannski skniðutt að gera eitthvað, þó það væri ekki nema eins og eitt arminnilett fylleghrí....jeveidiggi. Gæti jafnvel verið á föstudeginum, bara hvað sem fólk vill/nennir/getur/má/þorir/osfrv. Þið kommentið kannski á þetta svo maður viti hvernig landið liggur.
Annars bið ég bara að heilsa ykkur í bili bara held ég og sendi risaknús til ykkar allra í tilefni góðrar veðráttu ;)

magga faggabóbagga

sunnudagur, júlí 25, 2004

Vá nú er aldeilis orðið stutt í verslunarmannahelgina! Hvað er planið hjá ykkur fyrir hana? Ætlar eitthver út úr bænum í útilegu... Væri kannski gaman ef við myndum stefna að því að reyna að fara eitthvað saman eða þá jafnvel bara að hittast hérna í bænum ;) Mér var að detta í hug að stinga upp á því að reyna safna liði og fara í river rafting!! Ég veit að það er nokkuð dýrt að fara en við ættum að geta fengið hópafslátt ef við erum nægilega mörg. Hef eitthvað verið að kanna þetta og það er unnt að fá svona pakkaferð með rútu fram og til baka frá BSÍ... Endilega látið heyra í ykkur.

Kveðja, Margrét Lára

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Frekar dauft yfir síðunni þessa dagana
Það hefur nú verið frekar lítið að gerast hérna á síðunni
Ég ætla að gera tilraun til að bæta úr því, og spyr því ykkur alla nabbla hvað þið ætlið að gera um helgina. Það er svo rólegt í vinnunni hjá mér í dag að ég veit ekki hvað ég á af mér að gera. En allavega þá er ég ekki að fara að gera neitt sérstakt um þessa helgi nema þá að slappa af, er svo löt núna, er búin að vera á fullu allar helgar í sumar.
bæ í bili
Sandra
p.s. það er eins gott að einhverjar af ykkur svari, (ég veit nefninlega hvar þið eigið heima) Nei bara smá djók


miðvikudagur, júlí 14, 2004

Hæhó, þá er það ákveðið... við nabblarnir ætlum að hittast hjá henni Hrönn annað kvöld til að spjalla saman og hafa það gott ;)Til að fyrirbyggja misskilning þá verður ekki grillað... Húsið opnar klukkan hálfníu.

Sjáumst, M.LÁRA
hæhó littöl nabblís. Hvernig er staðan? Ætlum við að hittast á morgun eða? Væri gott að koma þessu á hreint, vita hvar, hvenær, hvað og hvort og sona...eruði ekki sammála?? Vonast til að heyra eitthvað......

maggan

fimmtudagur, júlí 08, 2004

VELKOMIN HEIM TIL ÍSLANDS ÞÓREY ;)

Nú er bara spurning hvort við getum ekki reynt að hafa smá nabblahitting fyrst við erum allar á landinu. Hvernig væri að reyna að hittast helgina 17.-18. júlí? Heyrist að Ragnheiði landhornaflakkara lítist ágætlega á að hafa eitthvers konar hitting þá... allar aðrar helgar eru víst orðnar fullbókaðar hjá skvísunni. Gunnhildur er samt akkúrat að fara á ættarmót þessa helgi þannig að það væri kannski bara best að hittast á fimmtudeginum... Gaman væri að að grilla saman, svona svipað og við gerðum hjá mér í fyrrasumar. Endilega látið heyra í ykkur hvernig ykkur líst á þessa hugmynd ;)

Kveðja, Margrét Lára

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Jæja hvað er eiginlega að frétta af ykkur? Af mér er allt gott að frétta. Fór á ættarmót um síðustu helgi, var í útilegu þarsíðustu helgi og ætla á Patreksfjörð um næstu helgi. Er svo mikið útúr bænum að mér finnst ég vera hálfgerður útlendingur, hitti varla nokkurn. Hef t.d. ekkert hitt Margréti Láru sem er nú löngu komin til landsins ...
Sumarið líður líka alveg svakalega hratt og ég verð farin til Mallorca og komin heim aftur áður en ég veit af ;) Langaði annars bara að kasta smá kveðju á ykkur!

Ragnheiður landshornaflakkari

föstudagur, júní 25, 2004

Jæja Stelpur!
Nú gerast undur og stórmerki. Já nefninlega að ég, Sandra, er að skrifa á þetta blogg í fyrsta sinn =) Jú jú mikið rétt tölvutæknin hefur náð tökum á mér...Loksins
Allavega ég ætlaði bara að óska Sif til hamingju með kallinn, hann Jónba sem er 25 ára í dag, ef mér skjátlast ekki. TIL HAMINGJU og við sjáum ykkur í kvöld =)
Sandra

þriðjudagur, júní 22, 2004

Ég lýsi hér með yfir öfund minni í garð þeirra ykkar sem vinna úti við eða eru í sumarfríi þessa dagana. 20 stiga hiti og sól og blíða að því er virðist tvo daga í röð! Eruð þið vissar um að við séum ennþá á Íslandi?
Annars sit ég bara föst inni á skrifstofu og geri varla annað en að glápa út um gluggann og ímynda mér að ég sé þarna úti. Er hálfeinmana þar að auki þar sem svo margir eru í sumarfríi og ofan á allt saman er ekkert svo mikið að gera hjá mér, bara svona reitingur. Er reyndar búin að vera að slá niðurstöður úr könnun inn í tölfræðiforrit. Svörin eru ca. 450 og það tekur ansi langan tíma að slá hvert inn. Við erum tvær að þessu og vorum komnar upp í 220 í morgun þegar allt hvarf bara af skjánum! Bara horfið og skjalið tómt! Ekki mjög gleðilegt en sem betur fer vorum við búnar að gera backup af fyrstu 150 svörunum svo það var ekki alveg allt sem glataðist. En samt ansi mikil vinna farin í súginn. En ég er nú samt í sólskinsskapi og tel mínúturnar þangað til að ég fer út í sólina (=315 mín núna).

Sólarkveðjur frá Ragnheiði

fimmtudagur, júní 17, 2004

Hæ hó og jíbí jei!!

Til hamingju með daginn skvísur... Lítið um hátíðarhöld hérna hjá mér, fann þó íslenska fánann fram og hef hann við hliðina á mér frammi í eldhúsi ;)Ég get þó montað mig af því að hið dæmigerða sautjánda júní veður er hérna í Danmörku núna... skýjað og skúrir ;)

þriðjudagur, júní 15, 2004

Jæja, fleirri fréttir úr sveitinni :) Við erum núna búin að grafa upp 3 beinagrindur, ég gróf ekki neina af þeim upp, heldur er ég búin að vera að grafa niður á kirkjugólfið. Búin að finna líka þessa flottu gripi, koparkertastjaka, rafperlur, glerperlur, hurðalöm, stein úr skartgrip og marga tugi járnnagla.
Svo er ég líka með öðruvísi fréttir, ég ætla til Krítar núna 5 júlí, vei vei gaman gaman. Fer með fjölskyldunni og við verðum þar í viku, svo verð ég í viku heima í Reykjavík, en fer síðan norður strax vikuna eftir það. Ef ykkur finnst þetta ruglingslegt þá er ég alveg sammála ykkur, ég bý víst í tösku í sumar ;), en svona er þetta nú i þessum bransa.
Takk fyrir myndirnar Ragnheiður, gaman að þeim.

og já ég gleymdi að svara því að krítarpípur eru gerðar úr keramik(leir) og voru notaðar til að reykja tóbak úr, það er oft hægt að finna á þeim merki sem gefur þá til kynna hvenær þær voru gerðar og geta þær því hjálpað mikið við að finna frá hvaða tíma fornleifarnar eru. Það eru enn til fyrirtæki sem framleiða krítarpípur en þær eru ekki eins vinsælar og áður (þ.e. á 16-18.öld voru þær vinsælastar). (þessi fræðslustund var í boði Margrétar Láru ;))

kveðjur xxx, fornleifanabblinn

mánudagur, júní 14, 2004


Jæja eftir dúk og disk nennti ég að setja myndirnar sem ég var búin að lofa á netið. Smellið á myndina af Wishkey til að skoða hinar myndirnar. Ég bið ykkur að afsaka lélegan fókus á sumum myndanna og ef hann fer mikið í taugarnar á ykkur verðið þið bara að gefa mér nýja myndavél svo ég geti tekið myndir í fókus ;)

Ragnheiður

laugardagur, júní 12, 2004

Núna eruð þið væntanlega flestar, nema ég og Þórey, að hittast heima hjá Lísu og fagna því að hún sé orðin kennari. Mig langar því til að segja TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN LÍSA SKVÍSA... nú getur þú farið að kenna mér að tala almennilega dönsku... þú hefur nú líka verið að því hingað til ;) Hlakka til að sjá ykkur í sumar, núna eru bara 11 dagar þar til ég verð á leiðinni heim til Íslands :D Það þýðir að það eru bara 5 dagar þar til ég verð búin í prófum... veii... og síðan fer ég að gelgjast hérna í Danmörku með "litlu" frænknum mínum þeim Bylgju og Ölmu sem eru á leiðinni í heimsókn... Ekki langt síðan við vorum á þessum aldri á leiðinni til Leeds! Munið þið nú hvað við vorum orðnar fullorðnar þá!!